Hvernig munu sveitarfélagið og ríkið fá tekjur af verkefninu?  

Sveitarfélagið Ölfus fær tekjur af starfseminni með fasteignagjöldum, gatnagerðargjöldum og útsvari, og mun síðar meir eignast höfnina sem reist verður – með tilheyrandi tekjumöguleikum. Auk þess skapar verkefnið 80 ný störf og um 80 afleidd störf sem leitt getur til þess að íbúum fjölgi í bænum. Það myndi þýða auknar tekjur fyrir Ölfus. Þá verða íslenska ríkinu að sjálfsögðu greiddir skattar og gjöld eins og lög og reglur gera ráð fyrir.  

Þessi vefsíða notar vafrakökur.