Hvers vegna er Heidelberg með þessi áform? 

Markmið Heidelberg er að verða leiðandi á heimsvísu varðandi sjálfbær byggingarefni. Sementsiðnaðurinn ber ábyrgð á 6-8% af kolefnislosun af mannavöldum á heimsvísu. Vegna þessa er eitt af meginmarkmiðum Heidelberg Materials að minnka kolefnisfótspor sitt og neikvæð áhrif af sementsframleiðslu. Verkefnið við Þorlákshöfn er liður í áætlun fyrirtækisins að draga verulega úr kolefnislosun í byggingariðnaði og færa þannig mikilvæga atvinnugrein nær sjálfbærri framleiðslu. Notkun móbergs í sementsframleiðslu og vinnsla þess með endurnýjanlegri orku á Íslandi myndi draga úr loftslagsáhrifum sementsframleiðslunnar í magni sem fá fordæmi eru fyrir í greininni. 

Þessi vefsíða notar vafrakökur.