Íbúafundur frestast

Uppfært:
Ákvörðun hefur verið tekin um að fresta fyrirhugugðum íbúafundi til loka ágústmánaðar. Ákvörðunin er tekin til þess að sem flest geti mætt á fundinn. Nákvæm dagsetning verður auglýst um leið og hún liggur fyrir.

Fyrri frétt:
Íbúafundur 25. júlí kl. 20

Heidelberg Materials boðar til íbúafundar í Versölum, Þorlákshöfn til að fara yfir stöðuna á áformum fyrirtækisins um að hefja móbergsvinnslu í sveitarfélaginu og framkvæmdir henni tengdar. Meðal þess sem rætt verður er hugmynd að nýrri staðsetningu vinnslunnar.

Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og talsmaður Heidelberg Materials á Íslandi, stýrir fundinum.

Þessi vefsíða notar vafrakökur.